Viðskipti
| mbl
| 25.1.2010
| 14:07
Friðrik Sophusson stjórnarformaður Íslandsbanka
Nú stendur yfir stjórnarfundur Íslandsbanka og liggur fyrir tillaga um nýja stjórn bankans. Friðrik Sophusson, fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins og forstjóri Landsvirkjunar, verður stjórnarformaður.
Aðrir stjórnarmenn verða:
John Mack, Marianne Økland, Árni Tómasson, Neil Brown, Raymond Quinland og Martha Eiríksdóttir.
Tillagan verður borin undir aðalfundinn undir lok hans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















