Samkeppniseftirlitið fær auknar heimildir til íhlutunar

Samkeppniseftirlitið stækka

Samkeppniseftirlitið

Samkeppniseftirlitið hefur heimildir til að setja skilyrði um að fyrirtæki sem yfirtekin eru af bönkum sem tryggja sjálfstæði þeirra og skilyrði um sölu þeirra innan eðlilegs tíma, enda þótt yfirtakan feli ekki í sér skörun á mörkuðum eða markaðsráðandi stöðu. Óvenjulegar aðstæður sem nú ríkja í atvinnulífinu kalla á þessar heimildir að mati áfrýjunarnefndar.

Úrskurðurinn veitir Samkeppniseftirlitinu auknar heimildir til að fylgja eftir nýútgefnu umræðuskjali um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja, að áliti Samkeppniseftirlitsins.

Í október sl. tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun vegna samruna Vestia hf. (dótturfélags NBI banka, þ.e. Landsbankans) og Teymis hf. (móðurfélags t.d. Vodafone). Var ekki talin heimild samkvæmt samkeppnislögum til þess að grípa til íhlutunar í samrunann þar sem engin samkeppnisleg skörun væri á milli þessara fyrirtækja.

Þá var ekki í málinu gerð athugasemd við fjárhagslega endurskipulagningu Teymis. Samrunaákvæði samkeppnislaga heimila Samkeppniseftirlitinu að ógilda eða setja samruna skilyrði þegar sannað er að hann raski samkeppni.

Síminn hf. kærði fyrrgreinda ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Hélt Síminn því fram að þar sem Teymi væri komið í eigu dótturfélags NBI hf. og skuldir fyrirtækisins hefðu verið afskrifaðar leiddi það til þess að Teymi og dótturfélög væru kominn í markaðsráðandi stöðu á fjarskiptamörkuðum og mörkuðum fyrir upplýsingatækni. Af því leiddi að samruninn raskaði samkeppni með umtalsverðum hætti. Krafðist Síminn þess að umræddur samruni yrði ógiltur eða honum sett skilyrði, að því er segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Samruninn tekinn fyrir að nýju

„Í úrskurði áfrýjunarnefndar sem birtur var 22. janúar sl. var staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að ekki væri lagagrundvöllur til þess að ógilda samrunann. Þá taldi áfrýjunarnefndin að „samkeppnisreglur megi ekki takmarka möguleika fyrirtækja á fjárhagslegri endurskipulagningu með samningum við kröfuhafa, þegar skuldir eru að sliga rekstur með þeim hætti að hann færi á annað borð í þrot.“

Var ekki fallist á það að samruninn leiddi til markaðsráðandi stöðu Teymis. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hins vegar að samkeppnisleg vandamál geti leitt af langvarandi eignarhaldi banka á atvinnufyrirtækjum. Hinar óvenjulegu aðstæður sem nú ríki veiti heimild samkvæmt samkeppnislögum til setja yfirtöku banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri skilyrði til þess að hin yfirteknu fyrirtæki starfi eins sjálfstætt og unnt er frá bönkunum. Bankarnir muni síðan selja fyrirtækin innan eðlilegs tíma. Á þessum grunni var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins felld úr gildi.

Af þessum úrskurði leiðir að Samkeppniseftirlitið mun taka samruna Vestia hf. og Teymis fyrir að nýju. Þann 8. desember 2009 birti Samkeppniseftirlitið umræðuskjal um banka og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Í því er fjallað um samkeppnisleg álitaefni sem tengjast m.a. eignarhaldi banka á fyrirtækjum sem lent hafa í skuldavanda.

Umræddur úrskurður áfrýjunarnefndar er mikilvægur í þessu samhengi. Túlkun nefndarinnar felur í sér að heimildir samkvæmt samkeppnislögum til að grípa inn í samruna með bindandi hætti séu rýmri en Samkeppniseftirlitið hafði áður talið. Eftirlitið hafi þannig aukna möguleika til að taka á þeim samkeppnislegu vandamálum sem tengjast eignarhaldi bankanna," að því er segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir