Viðskipti
| mbl
| 25.1.2010
| 14:37
Samningum ekki lokið
Hvorki bandaríski bílaframleiðandinn General Motors né hollenski sportbílaframleiðandinn Spyker vilja staðfesta fréttir sænska sjónvarpsins um að búið sé að ganga frá samningum um að Spyker kaupi sænska bílaframleiðandann Saab, dótturfélag GM.
Sænska sjónvarpið sagði í dag að búið væri að ganga frá samningum og að bæði Evrópski fjárfestingarbankinn og sænski seðlabankinn hefðu samþykkt lánafyrirgreiðslu vegna kaupanna. Nú segir sjónvarpið, að samningaviðunum sé haldið áfram.
Mike Stainton, talsmaður Spyker, segir við Bloomberg fréttastofuna nú síðdegis, að staðan sé sú sama og hún hafi verið undanfarna daga og vikur. Ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert og þeir sem haldi slíku fram hafi misskilið þróun mála.
Hlutabréf Spyker hafa hækkað um 36% í kauphöllinni í Amsterdam í dag vegna þessara frétta.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















