Gengið frá kaupum Spyker á Saab
Sænskir fjölmiðlar fullyrða að gengið hafi verið frá því að hollenski sportbílaframleiðandinn Spyker kaupi sænska bílaframleiðandann Saab, dótturfélag General Motors í Svíþjóð. Viðræður hafa staðið yfir um helgina um nýtt tilboð frá Spyker.
Sænska sjónvarpið segir, að bæði Evrópski fjárfestingarbankinn og sænski seðlabankinn hafi fallist á að veita nauðsynlega lánafyrirgreiðslu vegna kaupanna. Boðað hefur verið til aukafundar sænsku ríkisstjórnarinnar í dag vegna málsins.
Stjórn General Motors hafði áður samþykkt, að leggja Saab verksmiðjurnar niður vegna þess að tilboð, sem höfðu borist, voru ekki nægilega góð. GM sagði hins vegar, að ef betri tilboð kæmu fram yrði fyrirtækið til viðræðu um þau.
Útlit var fyrir að þúsundir starfsmanna Saab verksmiðjanna í Trollhättan í Svíþjóð og víðar myndu missa vinnuna en samstals starfa um 3400 manns hjá fyrirtækinu í Svíþjóð.
Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC mun rússneska fjármálafyrirtækið
Conversbank Financial Group, stærsti hluthafi Spyker, hafa lagt fram nauðsynlegt fjármagn til að kaupa Saab.
Gengi hlutabréfa Spyker hefur hækkað um 28% í kauphöllinni í Amsterdam í dag.



















