Landic Property gjaldþrota

Stjórn Landic Property hf. hefur óskað eftir því að bú félagsins verði tekið til gjaldþrotaskipta við Héraðsdóm Reykjavíkur en kröfuhafar félagsins felldu frumvarp til nauðasamnings fyrir félagið. Heildarskuldir félagsins eru um það bil 120 milljarðar króna.

79 kröfuhafar samþykktu frumvarpið, 6 sátu hjá eða mættu ekki, en 2 höfnuðu frumvarpinu. Þeir sem ráða yfir 97,65% af kröfufjárhæðum samþykktu frumvarpið, en hlutfall höfðatölu þeirra sem samþykktu frumvarpið var 83,5%. Hvort hlutfall um sig hefði að lágmarki þurft að vera 96% svo frumvarpið teldist samþykkt.

Í ljósi niðurstöðu kröfuhafafundar hefur stjórn félagsins því óskað eftir gjaldþrotaskiptum.

Landic Property hefur verið í greiðslustöðvun frá því í apríl í fyrra.  Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands, að eftir endurskipulagningu síðustu mánaða sé Landic Property eignarhaldsfélag. Helstu eignir félagsins séu reiðufé, nálægt 900 milljónir króna, kröfuréttindi um 300 milljónir króna, og 16% hlutafjár í fasteignafélaginu Reitum, sem er að mestu leyti í eigu íslensku bankanna. Í því félagi eru fasteignir sem eru metnar á um 90 milljarða króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK