Geithner grillaður
Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, svaraði spurningum bandarískrar þingnefndar um sinn þátt í því að nota fé skattgreiðenda til að koma tryggingarrisanum AIG til aðstoðar.
Geithner segir að bandarísk stjórnvöld hafi gripið til nauðsynlegra aðgerða til að koma í veg fyrir það sem hann kallar „seinni kreppuna miklu“. Talið er að frammistaða ráðherrans muni ráða miklu um pólitíska framtíð hans.
„Við gripum ekki til þessara aðgerða til að vernda hagsmuni fjármálafyrirtækja eða einstakra stofnana. Við gripum til þessara aðgerða vegna þess að ef AIG hefði fallið, við þessar aðstæður, þá hefðu afleiðingarnar fyrir hagkerfið okkar og bandarískar fjölskyldur og fyrirtæki orðið hörmulegar,“ sagði Geithner.
Bæði repúblikanar og demókratar í nefndinni gagnrýndu störf Geithners er hann var seðlabankstjóri New York ríkis. Hann var m.a. gagnrýndur fyrir að hafa verndað stóra banka fyrir fjárhagslegu tapi, sem tengist falli AIG.



















