Viðskipti
| AFP
| 29.1.2010
| 11:32
Lagarde: Grikkland stendur ekki eitt
Hún sagði á fundi með fréttamönnum í dag að evru-ríkin stæðu saman og hin evru-ríkin stæðu með Grikkjum til að tryggja að þeir grípi til nauðsynlegra aðgerða hvað varðar fjármál hins opinbera.
„Ég hef fullkomið traust á því að ríkisstjórn Grikklands, sem Papandreou stýrir, muni koma þessum umbótum á," segir Legarde.
Skuldatryggingaálag á grísk ríkisskuldabréf til tíu ára hefur hækkað í 7,126% og hefur ekki verið hærra frá því Grikkir gengu í myntbandalagið árið 2001.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















