Viðskipti
| mbl
| 29.1.2010
| 13:31
| Uppfært
14:08
Skuldatryggingaálagið yfir 700 punkta
Skuldatryggingaálagið á íslensk ríkisskuldabréf til fimm ára fór yfir 700 punkta í dag. Hefur það því hækkað um tæpa 40 punkta frá því í gær samkvæmt upplýsingum greiningarfyrirtækisins CMA.
Þessi þróun er í takt við það sem er að gerast á skuldabréfamörkuðum en kastljós fjárfesta beinist nú að hættunni að mögulegu greiðslufalli einstakra ríkja. Grikkland er efst á baugi í þeim efnum en fjárfestar telja tvísýnar horfur á því hvort að stjórnvöldum þar í landi takist að fjármagna hallarekstur ríkisins á þessu ári. Ávöxtunarkrafa á grískum ríkisskuldabréfum hefur hækkað mikið í þessari viku og hefur hún aldrei verið hærri borið saman við þýsk ríkisskuldabréf - sem þykja þau traustustu á evrusvæðinu - frá því að Grikkir tóku evruna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















