Tap Nýherja 686 milljónir króna

Nýherji stækka

Nýherji

Nýherji tapaði 686 milljónum króna á síðasta ári en árið á undan nam tap félagsins 771 milljón króna. Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja segir að reksturinn hafi verið afar erfiður á síðasta ári.

„Rekstur Nýherja hf. var afar erfiður á árinu 2009 og tap á rekstri. Aðstæður á íslenskum markaði einkenndust af miklum samdrætti í eftirspurn vegna minni fjárfestinga fyrirtækja í tæknibúnaði og uppsetningu hugbúnaðarkerfa. Á upplýsingatæknimarkaði hafa þessar aðstæður leitt til þrenginga en tugir milljarða króna hafa verið afskrifaðir af skuldum helstu keppinauta félagsins og fyrirtækin endurreist í eigu ríkisbanka. Þessar aðgerðir raska samkeppnisaðstæðum og afkomu annarra fyrirtækja á upplýsingatæknimarkaði. Nýherji hefur mætt þessum efnahagserfiðleikunum með því að sjá á eftir á annað hundrað starfsmanna sinna frá hruni bankanna. Í janúar á þessu ári hefur reynst nauðsynlegt að grípa til frekari hagræðingaraðgerða til að mæta þeim óeðlilegu aðstæðum sem eru á innlendum markaði.

Þó að óvissa sé mikil í efnahagslífinu eru jákvæð teikn um viðunandi rekstur á árinu 2010 þar sem horfur eru á að samningar náist um ýmis stærri verkefni hjá fyrirtækjum samstæðunnar hérlendis og erlendis. Til þess að tryggja fjárhagsstöðu félagsins er nú unnið með viðskiptabönkum að því að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu og samningum um langtíma fjármögnun í samræmi við þær aðgerðaáætlanir sem bankarnir hafa boðað gagnvart fyrirtækjum, ásamt aukningu á hlutafé Nýherja. Gert er ráð fyrir að því ferli verði lokið í öðrum ársfjórðungi," segir Þórður í fréttatilkynningu.

Hér er hægt að lesa nánar um uppgjör Nýherja

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Norskar krónur.

Norska krónan styrkist enn

15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »
Olli Rehn.

Ný efnahagslægð á leiðinni

14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Óbreytt mat hjá Moody's

Stjórnarráð Íslands.
14:23 Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar. Meira »

Íslenskir lífeyrissjóðir með verstu ávöxtun innan OECD

11:05 Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var umtalsvert verri á árunum 2008-2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD. Á þessu árabili skiluðu íslenskir lífeyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun, en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun. Meira »

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Afkoma Landsnets versnar milli ára

14:32 Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 840 milljónum króna árið 2011 samanborið 3.563 milljón króna hagnað á árinu 2010. Meira »

Færir Advania forystu?

DataMarket á Bandaríkjamarkað

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...
11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

Færir Advania forystu? myndskeið

Alkemistinn mbl 45 Advania
09:29 Nokkur umræða hefur verið síðustu vikur, sérstaklega á samfélagsmiðlum um nýtt nafn Skýrr eða nafnið Advania. Fljótlega eftir að nafnið var kynnt fóru af stað vangaveltur um að latnesk merking orðanna „Ad vania“ væri „til einskis“ og var Google Translate skrifað fyrir þeirri þýðingu. Meira »

Kína í krísu eftir 20 ár?

07:07 Kínverjar gætu staðið frammi fyrir efnahagskrísu, hugi þeir ekki að endurbótum á fjármálakerfi sínu á næstu 20 árum. Þetta segir í nýrri skýrslu Alþjóðabankans og kínversku ríkisstjórnarinnar, sem ber heitið „Kína 2030“. Meira »

SFO bað Tchenguiz afsökunar

Vincent Tchenguiz.
09:42 Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Meira »

Loka Apótekaranum á Akranesi

Apótek Vesturlands er orðið eitt á lyfjamarkaði á Akranesi.
08:27 Lyfjaverslun Lyf og heilsa hefur ákveðið að loka lyfjaversluninni Apótekarinn á Akranesi þann fyrsta mars. Apótekið hefur verið opið í verslanamiðstöðinni á Dalbraut 1 frá því Lyf og heilsa lokaði lyfjaverslun við Kirkjubraut á sínum tíma. Meira »

Lækkun á Wall Street

Frá Wall Street
Í gær, 21:18 Helstu hlutabréfavísitölur lækkuðu á Wall Street í kvöld en lækkunin er rakin til hagtalna á evru-svæðinu sem benda til þess að efnahagslægð hafi tekið sér bólfestu þar á ný. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir