Viðskipti
| mbl
| 1.2.2010
| 13:40
Enn hækkar álagið á íslenska ríkið
Skuldatryggingaálagið á íslenska ríkið fór í 720 punkta í morgun og hafði ekki verið hærra síðan í maí í fyrra. Álagið lækkaði síðan upp úr hádegi og stóð þá í 694 punktum eða 33 punktum hærra en lokagildið á föstudag. Þetta þýðir að það kostar 694 þúsund evrur að tryggja sig gegn greiðslufalli til fimm ára á íslenskum ríkisskuldabréfum að andvirði tíu milljón evra.
Hækkunarþrýstingurinn á skuldatryggingaálagið undanfarna daga kemur í kjölfar þess að matsfyrirtækið S&P tilkynnti á föstudag að lánshæfismat ríkisins væri enn þá á gátlista og verði að öllu óbreyttu lækkað fyrir lok apríl mánaðar skýrist ekki hin pólitíska staða vegna Icesave-deilunnar á næstunni og óvissu varðandi endurfjármögnun erlendra skulda ríkisins verði eytt.
Þróunin á skuldatryggingaálagi íslenska ríkisins að undanförnu tengist einnig vaxandi ókyrrð fjárfesta vegna hugsanlegra vandamála gríska ríkisins við að fjármagna hallarekstur sinn á næstu misserum. Þeir óttast að hugsanleg greiðsluvandræði þess kunni smita útfrá sér til annarra ríkja evrusvæðisins og þar með þrengja mjög að aðgengi annarra skuldsetta ríkja að lánsfjármörkuðum.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin