Actavis með í baráttunn um Ratiopharm
Reutersfréttastofan segir, að tvö fyrirtæki, ísraelska fyrirtækið Teva og Actavis, sem nýtur stuðnings sænska fyrirtækisins EQT, virðist ætla að berjast um þýska samheitalyfjaframleiðandann Ratiopharm en frestur til að skila lokatilboðum í þýska fyrirtækið rennur út í vikulok.
Reuters segir, að bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer, sem áður var talið líklegast til að hreppa Ratiopharm, muni væntanlega ekki leggja fram tilboð.
Fréttastofan hefur eftir heimildarmönnum, sem þekkja til málsins, að Teva, sem er stærsti samheitalyfjaframleiðandi heims, sé með dýpri vasa en Actavis og samlegðaráhrifin af samruna við þýska fyrirtækið séu meiri.
Hins vegar hafi Actavis og EQT styrkt stöðu sína með því að heita því, að verja störf starfsmanna Ratiopharm í Ulm í Þýskalandi, þar sem fyrirtækið hefur höfuðstöðvar. Talið er að Tevia ætli að hagræða í rekstrinum og fækka störfum.
Þýska fyrirtækið var sett í sölumeðferð eftir að Adolf Merckle, aðaleigandi þess, framdi sjálfsmorð fyrir ári.
Reuters hefur eftir heimildarmanni í bankakerfinu, að reikna megi með að tilboðin í Ratiopharm muni nema allt að 3 milljörðum evra, jafnvirði 534 milljörðum króna.
Þá hefur Reuters eftir heimildarmönnum, að Actavis hafi leitað eftir stuðningi EQT með það að markmiði að styrkja stöðu sína með yfirtöku á Ratiopharm. Reynt var að selja Actavis í apríl en það tókst ekki.
Fyrirtækin tvö hafa ráðið Claudio Albrecht, fyrrum forstjóra Ratiopharm, sem ráðgjafa í tengslum við yfirtökutilraunina. Þá er Deutsche Bank, aðallánardrottinn Actavis, sagður hafa lagt blessun sína yfir þessi áform.



















