Fréttaskýring: Ekki málamyndaviðskipti
Ingibjörg Guðbjartsdóttir, forstöðumaður hjá Seðlabankum, Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota og Gunnar Andersen, forstjóri FME. mbl.is/Árni Sæberg
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Helgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, segir að vegna þess að viðskipti, sem fóru fram í gegnum fyrirtækin Glacier Capital Partners og Aserta, hafi a.m.k. að hluta til farið fram á Íslandi lúti þau íslenskum lögum.
„Gjaldeyrisviðskipti sem fara fram hér á landi lúta íslenskum reglum, þar á meðal ákvæðum um að heimild frá Seðlabanka þurfi að liggja fyrir áður en viðskipti geti farið fram.“ Segir hann að mál fyrirtækjanna tveggja snúist ekki um skilaskyldu á gjaldeyri eða svokölluð málamyndaviðskipti. „Hins vegar getur verið að viðskiptavinir þessara fyrirtækja hafi gerst sekir um eitthvað slíkt, en það kemur þá í ljós við frekari rannsókn.“
Eins og málið stendur nú eru fyrirtækin og eigendur þeirra grunuð um brot gegn áttundu grein laga um gjaldeyrismál, sem fjallar um heimild til gjaldeyrisviðskipta. Aðilar eru því, eins og áður segir, grunaðir um að hafa stundað gjaldeyrisviðskipti í heimildarleysi.
Ekki flugufótur fyrir ásökunum
„Þeir virðast hafa gert sér far um að halda sig formlega innan ramma laganna, en við erum á þeirri skoðun að svo hafi ekki verið,“ segir Helgi.Fjórmenningarnir, sem handteknir voru vegna málsins, hafa ekki viljað tjá sig við fjölmiðla. Einn þeirra, Karl Löve Jóhannsson, sendi þó orðsendingu til vefmiðilsins Pressunar þar sem hann segir ekki flugufót fyrir ásökunum á hendur sér og félögum sínum.



















