Getur styrkt stöðu verjenda
Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Helgi Magnús Gunnarsson, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, sagði í Morgunblaðinu í gær að svo virtist sem fjórir menn, sem handteknir voru fyrir helgi fyrir meint brot á gjaldeyrislögum, hefðu gert sér far um að halda sig formlega innan ramma laganna. Lögmenn, sem Morgunblaðið ræddi við segja að þessi ummæli bendi til þess að embættið telji að um gáleysisbrot sé að ræða. Ummælin geta því rennt stoðum undir varnir fjórmenninganna í hugsanlegu dómsmáli gegn þeim, að því leyti sem þau geta stutt þá fullyrðingu að um gáleysisbrot hafi verið að ræða.
Spurning um leyfi
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær snýst rannsókn á málinu um það hvort viðskipti fyrirtækjanna Glacier Capital Partners og Aserta hafi farið fram á Íslandi eða erlendis.Hafi þau farið fram erlendis falla þau ekki undir íslensk lög og málið fellur því niður. Yfirvöld eru hins vegar á þeirri skoðun að viðskiptin hafi átt sér stað á Íslandi og að ekki hafi verið fyrir þeim nauðsynleg heimild frá Seðlabankanum.



















