Viðskipti
| AFP
| 3.2.2010
| 8:03
Mikil aukning hagnaðar hjá Honda
Hagnaður japanska bílaframleiðandans Honda Motor jókst verulega á fjórða ársfjórðungi 2009 og er það einkum rakið til aukinnar sölu í Kína. Hefur félagið hækkað afkomuspá sína í kjölfarið en rekstrarárinu lýkur í lok mars.
Nam hagnaður Honda 134,6 milljörðum jena, 190 milljörðum króna, á tímabilinu október-desember. Á sama tímabili 2008 nam hagnaðurinn 20,2 milljörðum jena.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















