Viðskipti
| mbl
| 4.2.2010
| 7:58
Góð afkoma Deutsche Bank
Hagnaður Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, nam 5 milljörðum evra, jafnvirði 886 milljörðum króna, á síðasta ári en árið 2008 var 3,9 milljarða evra tap á rekstri bankans. Afkoman í fyrra var mun betri en sérfræðingar höfðu spáð.
Á síðasta fjórðungi ársins var 1,3 milljarða evra hagnaður af rekstri bankans sem var tvöfalt meira en sérfræðingar gerðu ráð fyrir. Á sama tímabili árið 2008 var 4,8 milljarða evra tap á rekstrinum. Var það meðal annars
Josef Ackermann, forstjóri bankans, segir að vísbendingar séu um að fjármálamarkaðurinn sé að færast í eðlilegt horf á þessu ári. Það muni þó taka tíma að yfirvinna áhrifin af fjármálakreppunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















