Viðskipti
| mbl
| 4.2.2010
| 7:12
Hagnaður Össurar nærri 2,9 milljarðar
Höfuðstöðvar Össurar. mbl.is
Hagnaður Össurar hf. á síðasta ári eftir skatta nam 22,8 milljónum dala, jafnvirði nærri 2,9 milljörðum króna, samanborið við 28,5 milljónir dala árið 2008, eða 3,6 milljarða króna á núverandi gengi.
Heildarsölutekjur á síðasta ári voru 331 milljón Bandaríkja dala, 41,9 milljarðar króna og dróst saman um 5% milli ára.
Össur hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Jón Sigurðsson, forstjóri, segir í tilkynningu að niðurstaðan sé góð og sýni sterka stöðu félagsins. Á árinu hafa efnahagsþrengingar haft áhrif á viðskiptavini Össurar og ákveðna markaði en engu að síður sýni fyrirtækið góðan rekstur og arðsemi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















