Viðskipti
| mbl
| 4.2.2010
| 8:24
Hagnaður Sony yfir væntingum
Hagnaður japanska raftækjaframleiðandans Sony Corp. nam 110 milljörðum króna og var langt umfram væntingar sérfræðinga. Sony segir hins vegar að útlit sé fyrir að 70-95 milljarða jena tap verði á öllu rekstrarári félagsins.
Á sama ársfjórðungi árið 2008 var 10,4 milljarða jena hagnaður á rekstri Sony. Á ársfjórðungnum júlí til september á síðasta ári var 26,3 milljarða tap á rekstrinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















