Skuldaálag Íslands lækkar
Skuldatryggingarálag íslenska ríkisins hefur lækkað nokkuð síðustu daga, öfugt við ýmis lönd evrusvæðis sem glíma við mikinn halla á opinberum fjármálum líkt og við. Álagið til 5 ára var í morgun 641 punktur en það var 675 punktar fyrir tveimur dögum.
Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka, að skuldatryggingarálagið sé þó enn 230 punktum hærra en það var í upphafi árs og hið langhæsta meðal EES-ríkja.
Íslandsbanki segir, að frá áramótum hafi athygli evrópskra fjárfesta í auknum mæli beinst að þeim löndum evrusvæðis sem á brattann eiga að sækja hvað varðar opinber fjármál á komandi misserum. Þar sé Grikkland efst á lista. Skuldatryggingarálag til 5 ára á Grikkland er nú 423 punktar en var 280 punktar í upphafi árs.
Í kjölfarið hafa fjárfestar beint sjónum að fleiri evruríkjum í áþekkri stöðu og hefur 5 ára skuldatryggingarálag á Portúgal ríflega tvöfaldast frá áramótum og álagið á Spán hækkað um tæp 50% á sama tíma. Álagið á fyrrnefnda landið er nú 227 punktar, en 168 punktar á það síðarnefnda.
Íslandsbanki segir, að Írland hafi hins vegar sloppið betur frá þessum áhyggjum fjárfesta þótt á móti blási þar og sé skuldatryggingarálag á landið lítt breytt frá áramótum.



















