Tap hjá Marel
Tap eftir skatta á rekstri Marels var 11,8 milljónir evra, jafnvirði tæplega 2,1 milljarði króna samkvæmt núverandi gengi. Árið 2008 var 8,4 millóna evra tap á rekstrinum.
Tekjur af kjarnastarfsemi árið 2009 námu 434,8 milljónum evra. Rekstrarhagnaður af kjarnastarfsemi var 24,8 milljónir evra, sem er 5,7% af veltu. Nettó vaxtaberandi skuldir hafa lækkað í 295 milljónir evra úr 379 milljónum evra í árslok 2008.
Tap eftir skatta var 23 milljónir evra á fjórða ársfjórðungi 2009 vegna niðurfærslu á bókfærðu verði eigna til sölu utan kjarnastarfsemi.
Fram kemur í tilkynningu frá Marel, að félagið hafi náð samkomulagi við Arion banka, Íslandsbanka og NBI um að breyta myntsamsetningu sambankaláns sem bankarnir veittu félaginu í maí 2009. Samkomulagið felur í sér að þeim hluta lánsins sem var í íslenskri krónu hefur verið breytt í evru sem er megintekjumynt félagsins. Fjárhæðin sem um ræðir nemur 66 milljónum evra.
|
|
Tilkynning Marels |



















