Toyota í kreppu
Akio Toyoda, stjórnarformaður Toyota Motor sagði á blaðamannafundi í dag, að fyrirtækið væri í kreppu vegna þess að innkalla þarf milljónir bíla í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum vegna vandamála í bensíngjöf. Baðst forstjórinn afsökunar á málinu.
„Trúið mér, Toyota bílar eru öruggir," sagði Toyoda, sem er barnabarn stofnanda fyrirtækisins. „Þið verðið að trúa því, að öryggi viðskiptavina okkar er forgangsmál."
Hann sagði, að sett yrði á fót rannsóknarnefnd til að komast til botns í því sem hefði gerst. Þá sagði hann að viðgerðir á bílum væru þegar hafnar.
Hann sagði, að enn hefði ekki verið tekin ákvörðum um hvernig brugðist yrði við vandamálum, sem komið hafa upp vegna hemla í bílum af gerðinni Prius.
Þýskir fjölmiðlar sögðu í morgun, að gallinn í bensíngjöfinni hefði komið fram í prófunum hjá Toyota árið 2007 en ekki hefði verið brugðist við því. Þessu vísaði varaformaður stjórnar fyrirtækisins á bug á blaðamannafundinum i Tókýó í dag. "




















