Forstjóri Össurar með 119 milljónir í laun
Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjaframleiðandans Össurar, var með 924 þúsund dali í laun og aukagreiðslur á síðasta ári en það svarar til 119 milljóna króna á núverandi gengi. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins, sem birtur var í vikunni.
Ólafur Gylfason, framkvæmdastjóri Össur Europe, var með 545 þúsund dali í laun og aðrar greiðslur en það svarar til rúmlega 70 milljóna króna. Mahesh Mansukhani, framkvæmdastjóri Össur North-America, var með 514 þúsund dala laun, jafnvirði rúmlega 66 milljóna króna.
Þá var Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri með 382 þúsund dali í laun og aukagreiðslur, jafnvirði 49 milljóna króna. Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri rannsóknar- og Þróunarsviðs, var með 324 þúsund dala laun, jafnvirði tæplega 42 milljóna króna og Egill Jónsson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs, var með 305 þúsund dali, jafnvirði 39,4 milljóna króna.
Niels Jacobsen, stjórnarformaður Össurar, fékk 50 þúsund dala stjórnarlaun sem svarar til tæplega 6,5 milljóna króna. Þórður Magnússon, varaformaður stjórnar, fékk 38 þúsund dala laun eða 4,9 milljónir króna. Aðrir stjórnarmenn, Arne Boye Nielsen, Kristján Tómas Ragnarsson og Svafa Grönfeldt fengu 25 þúsund dali, jafnvirði 3,2 milljóna króna. Sömuleiðis fékk Össur Kristinsson, fyrrum stjórnarmaður og stofnandi Össurar, 25 þúsund dali.voru með



















