Toyota innkallar Prius
Japanski bílaframleiðandinn Toyota Motor mun í vikunni tilkynna um innköllun á 300 þúsund bílum í Japan og Bandaríkjunum af gerðinni Prius vegna galla í hemlabúnaði. Toyota tilkynnti í síðustu viku, að innkalla þyrfti yfir 8 milljónir bíla í Asíu, Evrópu og Bandaríkjunum vegna galla í bensíngjöf.
Prius, sem gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni, hefur notið mikilla vinsælda víða, þar á meðal í Bandaríkjunum. Svo virðist sem gallar séu í tölvubúnaði í hemlakerfi bíla sem framleiddir voru á síðasta ári.
Japanska blaðið Yomiuri Shimbun sagði í dag, að fyrirtækið hefði gert umboðsfyrirtækjum sínum í Japan viðvart um innköllunina. Einnig verði skipt um hugbúnað í hemlakerfinu í nýjum Prius bílum í Bandaríkjunum og víðar.
Viðskiptablaðið Nikkei sagði, að einnig yrðu innkallaðir um 30 þúsund bílar sem seldir voru í Evrópu, Kína, Ástralíu, Miðausturlöndum og víðar.
Um er að ræða nýjustu útgáfu af Prius, sem byrjað var að framleiða í maí.



















