Actavis stækkar verksmiðjuna í Hafnarfirði
Frá lyfjaframleiðslu Actavis. mbl.is
Í fréttatilkynningu segir að framleiðslan á Íslandi gegni mjög mikilvægu hlutverki við markaðssetningu á nýjum lyfjum Actavis samstæðunnar. Afkastageta verksmiðjunnar eykst við stækkunina úr u.þ.b. einum milljarði taflna á ári, í um einn og hálfan, eftir samsetningu framleiðslunnar hverju sinni. Verksmiðjan hefur verið keyrð á hámarksafköstum frá miðju síðasta ári. Með stækkuninni verður rekstur verksmiðjunnar enn hagkvæmari en hann er í dag og samkeppnishæfni hennar eykst, en um 95% af framleiðslunni eru seld erlendis.
Gert ráð fyrir um 50 nýjum störfum eftir stækkunina í árslok 2010. Um 75% þeirra eru í framleiðslu, en einnig ýmis tengd störf. Auk þessa er nú þegar verið að fjölga starfsfólki til að anna þeirri eftirspurn sem er framundan á árinu, en Actavis auglýsti eftir fólki til starfa um helgina.
Áætlað að hefja framleiðslu í nýja hlutanum um næstu áramót og er lögð mikil áhersla á að hraða framkvæmdum eins og mögulegt er. Ekki er gert ráð fyrir töfum á annarri starfsemi meðan á byggingarframkvæmdum stendur.



















