6,8 milljarða hagnaður HS Orku
Hagnaður HS Orku á síðasta ári nam 6,8 milljörðum króna samanborið við tap að upphæð 11,7 milljörðum á árinu 2008. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild jákvæð um um 8,15 milljarða samanborið við tap að upphæð 4,7 milljarða árið áður.
Í tilkynningu frá félaginu segir, að betri afkoma stafi í meginatriðum af hækkun álverðs og stöðugra gengi íslensku krónunnar sem komi fram í lækkun gengistaps frá árinu 2008.
Samkvæmt ársreikningnum námu heildartekjur HS Orku hf á árinu tæpum 6,3 milljörðum samanborið við 5,4 milljarða árið áður. Segir félagið, að þessa ekjuaukningu megi í meginatriðum rekja til þjónustutekna frá HS Veitum, sem byggi á verksamningi milli fyrirtækjanna. Samsvarandi aukning er þá á kostnaðarhlið fyrirtækisins.
Aðrar tekjur námu 784 milljónum og skapast af sölu lands og hitaréttinda.
Framleiðslu- og sölukostnaður nam 4,4 milljörðum samanborið við 3,1 milljarð árið áður. Aukning skapast vegna þjónustu við HS Veitur hf svo og aukningu kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 499 milljónum samanborið við 377 milljónir á árinu 2008. Fyrirtækið segir að aukning annarra rekstrargjalda stafi aðallega af sérstakri afskrift þróunarkostnaðar að upphæð 142 milljónir.



















