Viðskipti
| mbl
| 8.2.2010
| 21:11
Bandarísk hlutabréf lækka
Hlutabréf héldu áfram að lækka í verði í kauphöllinni á Wall Street í kvöld. Dow Jones hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,04% og fór niður fyrir 10 þúsund stig í fyrsta skipti frá því í nóvember.
Ástæðan er sögð áhyggjur fjárfesta af því að miklar skuldir ríkja á evrusvæðinu seinki afturbata fjármálakerfis heimsins.
Dow Jones vísitalan er 9908 stig. Nasdaq vísitalan lækkaði um 0,71% og er 2125 stig.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















