Viðskipti
| mbl
| 8.2.2010
| 18:06
Bréf Marels lækka um 0,17 prósent
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,3 prósent í 28 milljóna króna viðskiptum í dag. Mest voru viðskipti með bréf Össurar, en gengi þeirra breyttist þó ekki. Bréf Marels lækkuðu hins vegar um 0,17 prósent. Úrvalsvísitalan endaði í 814,81 stigi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















