Viðskipti
| AFP
| 8.2.2010
| 8:14
Hagvexti spáð í Frakklandi
Seðlabanki Frakklands spáir nú 0,5% hagvexti á fyrsta fjórðungi ársins. Er þetta ívið meiri hagvöxtur en fyrri spár gerðu ráð fyrir.
Ríkisstjórn Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, hefur afgreitt fjárlagafrumvarp sem byggir á áætlunum um 1,4% hagvöxt á árinu öllu. Í fyrra dróst verg landsframleiðsla Frakklands saman um 2,25%.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















