Norðmenn semja við Kóreumenn um borpall
Kjell Inge Røkke. mbl.is
Norskt dótturfélag ítalska orkufyrirtækisins ENI tilkynnti í dag, að gerður hefði verið samningur við suður-kóreska fyrirtækið Hyundai Heavy Industries um að reisa olíuborpall í Barentshafi. Norska fyrirtækið Aker Solutions, sem er í eigu Kjell Inge Røkke, sóttist einnig eftir samningnum en fékk ekki.
Samningurinn er um að reisa fljótandi olíupall þar sem hægt verður að framleiða og geyma olíu á svonefndu Golíatsvæði, fyrsta olíusvæðinu sem Norðmenn ætla að nýta í Barentshafi.
Í maí í fyrra var gert ráð fyrir að heildarkostnaður við verkefnið yrði 28 milljarðar norskra króna, jafnvirði 605 milljarða íslenskra króna.
Aker Solutions sagðist í yfirlýsingu hafa orðið fyrir vonbrigðum með að fá ekki samning sem hefði skapað 7000 störf í Noregi.
Golíatverkefnið er að 65% hlutum í eigu ENI Norge og 35% í eigu Norwegian Statoil.



















