Viðskipti
| mbl
| 8.2.2010
| 12:52
Teymi sektað um 7,5 milljónir
Fjármálaeftirlitið hefur sektað eignarhaldsfélagið Teymi um 7,5 milljónir króna fyrir að gera ekki opinberar verðmyndandi upplýsingar í apríl á síðasta ári, er vörðuðu niðurfærslu á verðmæti farsímakerfis í eigu félagsins. Telur Fjármálaeftirlitið að með því hafi Teymi brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti.
Frá því að þetta gerðist hefur Teymi verið afskráð úr Kauphöll, fyrrum kröfuhafar félagsins tekið við stjórn þess og nýir stjórnendur verið ráðnir til starfa. Stjórn Teymis telur því að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um að beita stjórnvaldssekt vegna umrædds brots kalli því ekki á sérstakar aðgerðir.
Í fréttatilkynningu segir að núverandi stjórn Teymis ætli ekki að skjóta ákvörðun Fjármálaeftirlitsins til dómstóla.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















