Viðskipti
| mbl
| 9.2.2010
| 8:02
Hagnaður hjá UBS á ný
Hagnaður af rekstri svissneska bankans UBS nam 1,2 milljörðum svissneskra franka, jafnvirði 144 milljarða króna, á síðasta fjórðungi ársins 2009. Tap hafði áður verið á rekstri bankans undanfarna fimm ársfjórðunga.
Tap á rekstri bankans nam 2,73 milljörðum franka á síðasta ári samanborið við 21,29 milljarða franka tap á árinu 2008.
UBS, sem er stærsti banki Sviss, hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum að undanförnu, bæði vegna fjármálakreppunnar og einnig vegna málaferla bandarískra stjórnvalda á hendur viðskipatvina bankans sem eru sakaðir um stórfelld skattsvik.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















