Forstjórar Marels með 142 milljónir í laun á síðasta ári
Forstjórar Marel Food Systems voru á síðasta ári samtals með samtals 142 milljónir króna í laun og aðrar greiðslur að því er kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins. Hörður Arnarson, sem hætti störfum í mars á síðasta ári, fékk 420 þúsund evrur, jafnvirði 74 milljóna á núverandi gengi, í laun og aðrar greiðslur og Theo Hoen, sem tók við, fékk 384 þúsund evrur, jafnvirði 68 milljóna.
Þá kemur fram í ársreikningunum að Erik Kaman, fjármálastjóri, hafi fengið 372 þúsund evrur, jafnvirði 66 milljóna króna. Lárus Ásgeirsson, fyrrverandi sölustjóri, hafi fengið 260 þúsund evrur, jafnvirði 46 milljóna, og Sigsteinn Grétarsson, framkvæmdastjóri Marels ehf. 244 þúsund evrur, jafnvirði 43,2 milljóna króna.
Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður, fékk 52 þúsund evrur í laun og aðrar greiðslur, jafnvirði 9,2 milljóna króna. Friðrik Jóhannsson, stjórnarmaður, fékk 28 þúsund, jafnvirði 4,9 milljóna króna. Aðrir stjórnarmenn, þau Arnar Þór Másson, Helgi Magnússon, Margrét Jónsdóttir og Lars Grundtvig, fengu 20 þúsund evrur, jafnvirði 3,5 milljóna króna.



















