Viðskipti
| mbl
| 10.2.2010
| 6:02
Gallar í bílum frá Honda
Stjórnendur Honda hafa tilkynnt að þeir þurfi að innkalla fleiri bíla vegna galla í líknarbelgjum. Tilkynningin nær til 437.700 bíla, aðallega í N-Ameríku.
Honda tilkynnti í lok árs 2008 að gera þyrfti lagfæringar um innan við 4.000 bílum af gerðinni Accord og Civic sedan. Um mitt síðasta ári tilkynnti fyrirtækið að lagfæringar þyrfti að gera á rúmlega 500.000 bílum vegna galla í loftpúðunum. Nú er ljóst að fyrirtækið þarf að gera endurbætur á enn fleiri bílum.
Honda er annar stærsti bílaframleiðandi í Japan. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að loftpúðarnir geti sprungið út og með þeim fylgt málmhlutir sem geti skapað hættu fyrir ökumann. Fram kemur í tilkynningunni að þessi galli hafi valdið 11 meiðslum og einu dauðaslysi.
Verð hlutabréfa í Honda féllu strax eftir að yfirlýsingin var birt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















