Viðskipti
| mbl
| 11.2.2010
| 7:29
Saka yfirmann hjá Rio Tinto í Kína um njósnir
Kínversk stjórnvöld hafa sakað fjóra starfsmenn hjá Rio Tinto um mútur og að reyna að verða sér út um viðskiptaleyndarmál. Hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu í gær þegar fréttir bárust af þessum ásökunum.
Þessar ásakanir hafa valdið erfiðleikum í samskiptum Kína og Ástralíu. Meðal hinna ákærðu er Stern Hu sem er Ástrali og einn af yfirmönnum Rio Tinto í Kína. Hann hefur setið fangelsi frá því í sumar, en kínversk stjórnvöld hafa nú formlega sakað hann og þrjá kínverska samstarfsmenn hans um njósnir og mútur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















