Viðskipti
| mbl
| 11.2.2010
| 13:43
Svíar boða vaxtahækkun bráðlega
Seðlabanki Svíþjóðar hélt stýrivöxtum sínum óbreyttum í dag eins og búist var við og verða vextirnir því áfram 0,25% um skeið. Bankinn sagði hins vegar í yfirlýsingu, að nú stefni í að vextirnir byrji að hækka á ný nokkuð fyrr en áður var ráðgert.
Í desember sagði bankinn að vextirnir yrðu væntanlega óbreyttir fram að næsta hausti. Nú segist bankinn sjá fyrir sér, að vextir byrji að hækka í sumar og verði orðnir 1,1% á fyrsta ársfjórðungi 2011.
Hagfræðingar í sænskum bönkum hafa varað við því, að verði stýrivextir svona lágir lengi muni það ýta undir fasteignabólu.
Seðlabankinn spáir því nú að hagvöxtur á þessu ári verði 2,5%. Bankinn hafði áður spáð 2,7% hagvexti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















