Marel selur fyrirtæki

Marel
Marel

Marel hefur komist að samkomulagi við fyrirtækið American Industrial Acquisition Corporation (AIAC) um sölu á rekstri Carnitech A/S í Stövring, Danmörku, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi Marel.

AIAC er óskráð iðnaðarsamsteypa sem hefur það að langtímamarkmiði að byggja upp sterk fyrirtæki. Dótturfélag AIAC sem er kaupandi eignanna sem og skuldanna mun taka upp nafnið Carnitech.


Undanskilin frá samningnum er fyrrum starfsemi Carnitech í laxaiðnaði og á sviði frystibúnaðar, sem og starfsemi Carnitech í Bandaríkjunum, sem er nú rekin undir merkjum og yfirstjórn Marel. Marel mun leggja niður noktun á Carnitech vörumerkinu á næstu 12 mánuðum.

Samningsaðilar hafa gert langtíma leigusamning vegna húsnæðisins en kaupandinn fær forkaupsrétt að því. Bókfært tap á sölunni nemur 8 milljónum evra fyrir skatt, aðallega vegna afskrifta viðskiptavildar og endurmetinna eigna, og hefur verið tekið tillit til þess í ársreikningum fyrir 2009

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK