Viðskipti
| mbl
| 12.2.2010
| 9:50
Tók 19 ár að ljúka uppgjöri bankans
Uppgjöri á breska bankanum BCCI er að ljúka nærri tveimur áratugum eftir að hann varð gjaldþrota. Á vefnum newsiom.co.ic er falli bankans líkt við falla Kaupthing Singer & Friedlander. BCCI bankinn varð gjaldþrota í júlí 1991. Um 70 þúsund innistæðueigendur töpuðu gríðarlegum fjármunum á gjaldþrotinu. Í kjölfarið hófst löng og dýr málaferli sem beindust annars vegar að arabískum bankastjóra bankans og að Englandsbanka sem sakaður var um að hafa ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni. Endanlegu uppgjöri vegna gjaldþrotsins er nú að ljúka og eru horfur á að innistæðueigendur fái 86,5% af því sem var inni á reikningunum þegar bankinn féll. Í frétt newsiom.co.ic segir að horfur séu á að þeir sem áttu innistæður í Kaupthing Singer & Friedlander á Mön fái 94% af innistæðum greitt til baka, en að uppgjörið gæti dregist til árisins 2017.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















