Viðskipti
| mbl
| 15.2.2010
| 13:55
Færeyjabanki á athugunarlista hjá Moody's
mbl.is/Dagur
Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's hefur sett Færeyjabanka á athugunarlista í kjölfar þess að bankinn tilkynnti um kaup á 12 bankaútibúum í Danmörku og Grænlandi.
Segir Moody's að þessi kaup séu umtalsverð miðað við stærð bankans og því verði farið yfir áhrif þeirra á rekstraráhættu, lánshæfi og kostnað. Hugsanlegt sé að lánshæfiseinkunn bankans verði lækkuð.
Einkunnir Færeyjabanka eru A3/P-2/C. Bankinn segir í tilkynningu, að ekki sé búist við að lækkun einkunnarinnar muni hafa áhrif á stöðu bankans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















