Þýskir skattsvikarar gefa sig fram í hópum
Þýskir skattsvikarar, sem komu peningum undan með því að leggja þá inn á svissneska bankareikninga, hafa gefið sig fram í hópum frá því Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í síðustu viku að stjórnvöld ætluðu að kaupa leynilegan tölvudisk með nöfnum allt að 1500 manna, sem ættu fé á slíkum reikningum.
Blaðið Financial Time Deutschland hefur eftir fjármálaráðuneytinu í Bæjaralandi, að yfir 270 manns hafi gefið sig fram í síðustu viku við í Bæjaralandi. Í Hamborg gáfu 88 sig fram að sögn blaðsins. Sömu sögu er að segja frá fleiri svæðum í Þýskalandi.
Ónefndur uppljóstrari hefur boðið upplýsingar um eignir 1300 til 1500
manna, sem hafa falið peninga fyrir þýskum skattyfirvöldum inni á
svissneskum reikningum. Vill uppljóstrarinn fá 2,5 milljónir evra
(rúmar 445 milljónir króna) fyrir upplýsingarnar, sem gætu hjálpað
þýska skattinum að ná í 100 milljónir evra (17,8 milljarða króna). Sumir telja raunar að sú upphæð sé fjórum sinnum hærri.
Angela Merkel sagði um síðustu mánaðamót að hún vildi „gera allt“ til að fá upplýsingar um eignir skattsvikara og gaf til kynna að þýsk stjórnvöld myndu kaupa þessar upplýsingar. Þetta hefur sætt harðri gagnrýni víða, þar á meðal í Sviss en svissnesk yfirvöld segja, að kaup á stolnum upplýsingum væru þvert á stefnu þeirra og brytu grundvallarlögmálið um trúnað og friðhelgi einkalífs þeirra sem í hlut ættu.



















