Viðskipti
| Morgunblaðið
| 15.2.2010
| 5:30
| Uppfært
5:46
Verkís hannar virkjun í Ilulissat
Verkfræðistofan Verkís hefur fengið það verkefni að hanna vatnsaflsvirkjun við grænlenska bæinn Ilulissat, en virkjunin verður reist af Ístaki.
Virkjunin verður með þrjár 7,5 megavatta túrbínur og er gert ráð fyrir því að fyrsta vélin verði gangsett haustið 2012 og að verklok verði um ári síðar.
Verkís hefur áður hannað tvær virkjarnir á Grænlandi, annars vegar við Qorlortorsuaq og hins vegar við Sisimiut, en Ístak kom að byggingu beggja virkjananna.
Gunnar Ingi Gunnarsson, stjórnarformaður Verkís, segir verkefnin kannski ekki mjög stór, en að öll verkefni skipti máli, einkum á tímum sem þessum.
Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















