Viðskipti
| mbl
| 16.2.2010
| 5:35
Tap á rekstri Magma eykst
Tap á rekstri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy Corp. nam 5,3 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði 685 milljónum króna, á öðrum ársfjórðungi rekstrarárs félagsins sem lauk 31. desember 2009. Á sama tímabili ári fyrr var tap á rekstrinum 1,1 milljón dala.
Tekjur námu 1,4 milljónum dala á ársfjórðungnum samanborið við 1,3 milljónir dala á sama tímabili fyrir ári.
Fram kemur í tilkynningu að hluti skýringa á tapinu sé tap HS Orku á álafleiðum í desemberi. Magma á nærri 41% hlut í HS Orku.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















