Yfirtaka kæmi Actavis vel
Heimildir Reuters-fréttastofunnar herma að Actavis sæki það fast að yfirtaka þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm til þess að bæta markaðsvirði Actavis þar sem ekki tókst að selja félagið í apríl í fyrra líkt og stóð til.
Heimildir Business Week herma að Actavis hafi ásamt ísraelska samheitalyfjafyrirtækinu Teva komist í lokaáfanga í útboði á Ratiopharm. Ekki hefur fengist staðfest að niðurstaða sé komin í hvaða tvö fyrirtæki komust áfram en von er á niðurstöðunni í þessari viku.
Samkvæmt Reuters stendur sænska fjárfestingafyrirtækið EQT á bak við Actavis en auk þess sækist ísraelska lyfjafyrirtækið Teva og bandaríska lyfjafyrirtækið Pfizer eftir því að kaupa þýska félagið.
Framdi sjálfsvíg eftir mikið tap
Ratiopharm er fjölskyldufyrirtæki á meðan að Teva er stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims og Pfizer er stærsta lyfjafyrirtæki heims.
Eigandi Ratiopharm er Merckle fjölskyldan þýska og á að selja Ratiopharm til að grynnka á skuldum eignarhaldsfélags fjölskyldunnar. Fjölskyldufaðirinn, Adolf Merckle, framdi sjálfsvíg í janúar í fyrra eftir að hafa tapað mjög á hruni hlutabréfa.
Er þess vænst að lokatilboðin hljóði upp á 3 milljarða evra. Það yrði þá stærsta yfirtaka á lyfjafyrirtæki frá því Teva keypti bandaríska fyrirtækið Barr fyrir 7,46 milljarða dala árið 2008.
Telur sérfræðingur sem Reuters leitaði til að það hve lítið félag Actavis er geti komið sér vel þar sem það sé fjölskylda sem er að selja.
Deutche Bank vonar að yfirtaka bæti stöðu bankans sem lánadrottins Actavis
Þýski bankinn Deutsche Bank, helsti lánveitandi Actavis, styður tilboð Actavis þar sem bankinn telur að staða sín sem lánadrottinn Actavis muni batna með stærra félagi. Bankinn lánaði Actavis 4 milljarða evra þegar hann var bakhjarl Björgólfs Thors Björgólfssonar er hann keypti aðra hluthafa út úr Actavis árið 2007 með skuldsettri yfirtöku.
Ef Actavis fær að kaupa Ratiopharm þá verður sameinað félag þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims en Actavis er nú fimmta stærsta samkvæmt mati Credit Suisse.
Hér er hægt að lesa greiningu Reuters á þeim félögum sem sækjast eftir því að kaupa Ratiopharm.



















