Actavis og Teva keppa um Ratiopharm
Íslenska lyfjafyrirtækið Actavis og ísraelska lyfjafyrirtækið Teva eru nú orðin ein eftir í baráttunni um kaup á þýska lyfjaframleiðandanum Ratiopharm. Bloomberg fréttastofan hefur þetta eftir heimildarmönnum sem þekkja til mála.
Bloomberg segir, að sænska fjárfestingarfélagið EQT hafi fallið út eftir að fyrirtækin lögðu fram tilboð fyrir rúmri viku. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá sölunni á Ratiopharm í byrjun mars.
Bloomberg segir, að hvorki Hjördís Árnadóttir, talsmaður Actavis, né Denise Bradley talsmaður Teva og Johan Haehnel, talmaður EQT, hafi viljað tjá sig um málið.
Reutersfréttastofan hefur áður sagt að Actavis og EQT ættu í samvinnu um yfirtökutilraunina en Dow Jones fréttaveitan hefur sagt að fyrirtækin væru að reyna yfirtöku hvort í sínu lagi.



















