House of Fraser vill að lánaskilmálum verði breytt
Breska verslunarkeðjan House of Fraser hefur farið fram á það við lánardrottna sína að lánaskilmálum verði breytt og fyrirtækið geti notað lausafé til að auka birgðir. Skilanefnd Landsbankans á 33% hlut í fyrirtækinu en Glitnir er meðal lánardrottna.
Fjallað er um málið í blaðinu Daily Telegraph í dag. Segir blaðið að House of Fraser bjóðist í staðinn til að greiða gjald og að vaxtaálag verði hækkað en skuldir félagins nema um 250 milljónum punda, jafnvirði 44 milljörðum króna.
Blaðið segir, að bankarnir hafi tekið vel í beiðnina en stærstu lánardrottnarnir eru sagðir vera Lloyds Banking Group og Glitnir. Fyrirtækið segir að vaxandi viðskipti séu nú í verslunum fyrirtækisins og þó einkum í netsverslun þess og við því verði að bregðast með því að bæta birgðastöðuna. HoF ætlar nú að fara að selja vörur frá Karen Millen í netverslun sinni og reiknar með að við það muni netveltan aukast í 40-50 milljónir punda.
Baugur, FL Group, HBOS og kaupsýslumennirnir Tom Hunter og Kevin Stanford keyptu House of Fraser árið 2006. Skilanefnd Landsbankans yfirtók 33% hlut þegar Baugur var gjaldþrota, Don McCarthy, stofnandi og forstjóri HoF, á 22% hlut, Hunter á 10% hlut og Lloyds Banking Group erfði 5,5% hlut þegar hann yfirtók HBOS.
House of Fraser rekur 62 verslanir í Bretlandi og á Írlandi.



















