Actavis að semja um fjármögnun vegna yfirtöku
Lyfjaframleiðandinn Actavis Group ætlar að tryggja fjármögnun hugsanlegrar yfirtöku á þýska lyfjaframleiðandanum Ratiopharm Group International á næsta hálfa mánuðinum, að því er kemur fram í frétt Dow Jones fréttaveitunnar.
„Samningar (um fjármögnun) standa yfir og það lítur út fyrir að fjármögnunin verði tryggð bráðlega," hefur Dow Jones eftir ónafngreindum heimildarmanni sem þekkir til mála. Þegar þeim samningnum lýkur muni Actavis leggja fram áætlun um samruna við Ratiopharm.
Dow Jones segir, að sænska fjárfestingarfélagið EQT, sem féll út í síðustu umferð tilboða í þýska fyrirtækið vegna þess að tilboð þess var of lágt, kunni að koma inn í myndina á ný í félagsskap við Actavis.
Ísraelska lyfjafyrirtækið Teva fær einnig að skila inn lokatilboði í Ratiopharm. Búist er við að Teva leggi fram sína samrunaáætlun í lok næstu viku. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá sölunni á Ratiopharm í byrjun mars og að kaupverðið verði um það bil 3 milljarðar evra.



















