Viðskipti
| Morgunblaðið
| 18.2.2010
| 5:30
| Uppfært
6:04
Stjórn Íslandsbanka hefur ekki hlotið samþykki FME
Nýkjörin stjórn Íslandsbanka hefur ekki hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins. Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að ekki sé enn hafin vinna við að meta hæfi stjórnarmanna bankans.
Bæði þarf að rannsaka hæfi aðal- og varamanna stjórnar bankanna. Áður en sú könnun hefst þarf hinsvegar að ljúka umsögn um stjórnarmenn eignarhaldsfélaga bankanna þriggja, ISB Holding, Kaupskila og Landskila.
Samanlagt eru aðal- og varamenn í stjórnum bankanna og eignarhaldsfélaganna yfir 40 talsins. Gunnar Andersen vildi í samtali við Morgunblaðið ekki segja til um hvenær Fjármálaeftirlitið lyki umsögnum um hæfi stjórnarmanna.
Í stjórn Íslandsbanka eru Friðrik Sophusson, fyrrum fjármálaráðherra og forstjóri Landsvirkjunar, formaður, . Auk hans eru í stjórninni John E. Mack, Marianne Økland, Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, Neil Graeme Brown, Raymond Quinlan og Martha Eiríksdóttir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















