Fréttaskýring: 145 milljarða króna útflæði í febrúar
Eftir Ívar Pál Jónsson
ivarpall@mbl.is
Fastar nettóútgreiðslur gjaldeyriseigna nema tæpum 145 milljörðum króna í þessum mánuði, samkvæmt yfirliti Seðlabanka Íslands yfir gjaldeyrisforða og tengda liði. Ekki fengust svör frá bankanum um hvaða gjaldeyrisskuldir eru þarna á ferðinni, en í skýringum segir að um sé að ræða gjaldeyrislán, verðbréf og innistæður. Næstu þrjá mánuði eru útgreiðslurnar 236 milljarðar króna og alls 245 milljarðar næsta árið.
Þessi tala, 245 milljarðar, er hærri en Seðlabankinn segist skulda í yfirliti yfir erlenda stöðu. Taka verður þó fram að inni í tölunni eru einnig greiðslur vegna erlendra skulda ríkisins. Í yfirliti Seðlabankans segir að erlendar skuldir bankans séu 182 milljarðar króna. Sú tala var 401 milljarður króna fyrir rúmu ári, í nóvember 2008. Í millitíðinni hefur undirliðurinn „aðrar erlendar skuldir“ lækkað úr 192 milljörðum króna niður í ekki neitt, en í skýringum bankans segir að inni í þeirri tölu sé eign erlendra aðila á innstæðubréfum og viðskiptaskuld í íslenskum krónum við erlend greiðslumiðlunarfyrirtæki.
228 milljarða kr. skuld
Í yfirliti yfir efnahag Seðlabanka Íslands kemur fram að bankinn skuldar innlendum aðilum 153 milljarða króna í bundnum gjaldeyrisinnistæðum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er þar mikið til um að ræða gjaldeyri frá skilanefndum gömlu bankanna, sem seytlað hefur inn á innistæðureikninga í Seðlabankanum eftir því sem kröfur hafa innheimst og eignir selst. Þessi gjaldeyrisinnlán eru bundin til skamms tíma, eða mest sex mánaða.
Að auki eiga innlendir aðilar 75 milljarða á gjaldeyrisreikningum í Seðlabankanum, en leiða má líkum að því að hluti þeirra sé einnig í eigu skilanefnda.
Gjaldeyrir skilanefndanna er eðli málsins samkvæmt í eigu erlendra kröfuhafa bankanna. Því verða bundin gjaldeyrisinnlán skilanefndanna að teljast til erlendra skulda, þótt þær séu ekki taldar með í erlendri stöðu Seðlabankans. Þannig má leiða líkum að því að hrein erlend staða bankans sé allt að 228 milljörðum lakari en þeir 293 milljarðar sem yfirlit hans um erlenda stöðu sýnir, eða 65 milljarðar.
Hugsanlega eru bundnu og óbundnu gjaldeyrisinnlánin meirihluti „fastra nettóútgreiðslna gjaldeyriseigna“ næsta árið, en sem fyrr segir nema þær 245 milljörðum króna, þar af 145 milljörðum í febrúar. Þannig gætu þessir 145 milljarðar verið sá hluti innistæðnanna sem innleysanlegur er í mánuðinum.
Taka verður þó fram að þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir hafa ekki borist nánari útskýringar á þessum tölum frá Seðlabankanum.



















