Viðskipti
| mbl
| 22.2.2010
| 18:55
Grunaður um brot á bankaleynd
Fjármálaeftirlitið hefur kært Stefán H. Stefánsson, fyrrverandi stjórnarformann Landsvaka, peningamarkaðssjóða Landsbankans, til sérstaks saksóknara fyrir alvarlegt brot á bankaleynd en Stefán sendi bankastjórum Landsbankans trúnaðarupplýsingar um einstaka viðskiptavini sjóðanna þvert gegn fyrirmælum laga. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Stefán er einnig fyrrverandi forstöðumaður eignastýringarsviðs Landsbankans en Landsvaki rak m.a peningamarkaðssjóði Landsbankans. Hann er grunaður, samkvæmt frétt Stöðvar 2, um brot á bankaleynd með því að hafa á árinu 2008, fyrir bankahrunið, sent stjórnendum Landsbankans, þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini Landsvaka.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















