Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.2.2010
| 5:30
Krefst skaðabóta auk riftunar
Skiptastjóri þrotabús Baugs hyggst krefja stjórn Baugs um skaðabætur vegna kaupa félagsins á eigin hlutabréfum af stórum hluthöfum.
Áður hefur verið greint frá því að skiptastjóri hyggist krefja félögin sem seldu um mismun kaupverðsins, 15 milljarða, og raunverulegs virðis hlutabréfa í Baugi, en viðskiptin fóru fram um mitt ár 2008.
Félögin sem seldu voru Gaumur, ISP eignarhaldsfélag og Bague SA, en félögin eru í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ingibjargar Pálmadóttur og Hreins Loftssonar.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















