„Toyota óx of hratt"
Forstjóri japanska bílaframleiðandans Toyota, Akio Toyoda, segir í yfirlýsingu sem hann sendir til bandaríska þingsins að það geti verið að hraður vöxtur fyrirtækisins sé ástæðan fyrir þeim göllum sem komið hafa upp í Toyota-bifreiðum að undanförnu.
Fyrirtækið hefur þurft að innkalla um 8,5 milljón bifreiða en þar af hafa nokkur þúsund bifreiðar verið innkallaðar á Íslandi vegna galla í eldsneytisgjöf og einhverjar vegna galla í hemlabúnaði.
Segir Akio Toyoda að fyrirtækið hafi vaxið of hratt og biður afsökunar á því hve langan tíma hafi tekið að vinna að málinu. Þetta kemur fram á vef BBC.
Undanfarna mánuði hefur Toyota í þrígang þurft að innkalla bifreiðar vegna galla. Flestar þeirra hafa verið innkallaðar í Bandaríkjunum og líta stjórnvöld þar í landi málið alvarlegum augum.
Bandarísk þingnefnd lagði í síðustu viku fram kröfu um að fá í hendur leynileg gögn, sem fyrrum lögmaður japanska bílaframleiðandans Toyota segir, að sýni fram á að fyrirtækið hafi ítrekað leynt gögnum fyrir dómstólum og eftirlitsstofnunum í Bandaríkjunum.
Sérstök nefnd á vegum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings er að rannsaka viðbrögð Toyota Motor Corp. við kvörtunum um galla í eldsneytisgjöf Toyota-bíla.


















