Engin viðskipti á millibankamarkað í rúma viku
Engin
viðskipti hafa verið á millibankamarkaði með gjaldeyri hér á landi
síðan í byrjun síðustu viku og hefur gengi krónunnar gagnvart evru því
verið stöðugt á þeim tíma.Evran hefur veikst mikið undanfarna daga gagnvart helstu myntum. Þetta kemur fram í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.
„Eins og kunnugt er ákvarðast gengi evru gagnvart krónu á millibankamarkaði. Það gerir það að verkum að þegar mikil breyting er á evrunni og þá í átt til veikingar leiðir það til þess að krónan fylgir og veikist gagnvart öðrum myntum.
Stendur evran nú í 174,3 krónum en um áramótin var hún í 179,9 krónum. Þetta jafngildir því að krónan hafi hækkað um 3,2% gagnvart evru á tímabilinu. Á hinn bóginn stendur Bandaríkjadollar í 128,5 krónum og hefur krónan lækkað um 2,8% gagnvart dollaranum frá áramótum," segir í Morgunkorni.



















